NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ Í ALDANNA SKAUT...Helga Fríða Tómasdóttir

Og aldrei það þemur til baka... Svona til að öppdeita des þá voru Frostrósir Klassík awsome...gátum meira að segja erindast helling og komum heim sælar og glaðar! Snjónum kingdi niður svo ekki þurfti að gera könnun hvort verði rauð eða hvít jól hjá fjölmiðlunum þótt þeir hafi reynt að skapa smá spennu á þorláksmessu hehe...Já svo má ekki gleima því að turtildúfurnar á neðri hæðinni settu upp hringa á dögunum! Annars hafa jólin og áramótin verið ósköp ljúf vinnan hæfileg og bakið til friðs, einna helst mjöðmin sem angrar. En það er nú lítið angur miðað við það sem sumir aðrir í heiminum mega þola svo ég er ekkert að kvarta svosem.Fórum svo samkvæmt venju í flugeldasölu úteftir og í þetta sinn var sko selt í nýja húsinu okkar, þvílíkur munur og gleðin! þar sem allir voru nú á sama stað þurfti ég bara að taka tvær vaktir sem var fínt þar sem unnið var við pökkun í vinnunni milli hátíða. Afrekaði þó að keyra útaf á leiðinni heim fyrra kvöldið í blindbyl hjá Hólalæk þaðan sem Klakksmenn drógu okkur upp.  Ekki varð af eiginlegri flugeldasýningu hjá Tómasi í ár sökum vinnu plássleysis í bílskúrnum (patrolinn er enn í pörtum) og snjóalaga á skotsvæði sem lá undir miklu fannfergi og girt með ruðningum.
Annars óska ég öllum gleðilegs árs og þakka það liðna, Stefni á að annallinn verði klár fljótlega.
 Later þarf að fara að elda kalkún!

'A ÖÐRUM SUNNUDEGI AÐVENTUNNAR....Helga Fríða Tómasdóttir

'ég sat og bjó til jólakort, fyrst voru prentaðir tugi mynda skrifað inní voða flott kort, límt og skellt með diski troðið í umslag sleikt og lokað. Steikti svo laufabrauðið  sem var afgangs síðan í fyrradag með dyggri aðstoð tveggja nýliða sem þrátt fyrir ungan aldur... við skulum segja beggja hafa þegar unnið sér rétt við borðið á næsta ári. Svo nú er það frá, jólakortin klár á pósthúsið og í fyrramálið þegar birtir verður pakkað inn jólagjöfum til útlanda.
Annars all gott maðurinn minn liggur að vísu í bullandi kvefi, svo ég fékk lausan tauminn á laugardaginn var og fór í höfuðborgina alein og sjálf fórum systur í Kringluna og svo í laufabrauðsbakstur til Siggu Dísu og Gunna hitti alla ættingjana og nýjustu frænkuna Þórhildi Káradóttir óttalega lítil enda bara tæpra þriggja vikna! Gleymdi nottlega gjöfinni til hennar svo ég kíki til þeirra um næstu helgi þá eru Frostrósir og önnur bæjarferð í kortunum. Drengirnir á fullu í vinnunni Tómas fékk svo vel útborgað að hann fór í bæjarferð með kærustuna og keypti meira að segja jólagjöf fyrir mömmu sín! Junior  er í fjórða túr í beit og á eftir einn áður en Gummi snýr til baka úr fæðingarorlofinu. Fullt að gera í vinnunni þarf ekki að kvarta yfir því hlakka til að prófa nýju handahlífarnar sem ég keypi um helgina.
Later gott fólk!

USS USS SUSS....Helga Fríða Tómasdóttir

Jæja mál og manna siður að kíkja hér inn og skrifa niður, veit ekki samt hvurs vegna tvær færslur fóru ekki inn humm... En fullt búið að gerast fórum sumsjé til Glasgow  versluðum eina skó, naríur, stjörnukíki og skotapils á junior! Og kallinn kom mas. með 10 pund í afgang!
 Komum svo öllum á óvart nema þessi 15 viðstadda helgina eftir með því að láta pússa okkur saman, Svo nú get ég hætt að skammstafa MTBM eða fyrir þá sem ekki voru búin að fatta: maðurinn to be maybe. er sumsjé orðinn maðurinn minn og ég Frú Fríða.
Annars er allt gott svosem Tómas komin í fulla afleysingu á Bryggjunni, Junior að leysa af á Hringnum
, kallinn að dúlla sér á trillunni 1-2 daga í viku þennan mánuðinn þegar gefur og Máni minn allur að koma til hann á samt sína slæmu dagaenn þá en þeir eru miklu miklu færri... Svo er ég alveg í skýjunum með geldinuna núna, tíkin á bullandi blæðinum og honum gæti ekki verið meira sama ólíkt því sem hann var fyrst þegar hann kom og þá með kúlurnar held það hafi jafnvel áhrif að hann hafi aldrei farið uppá tík sem betur fer. Aðventan að bresta á er búin að kaupa flestar gjafir, og er að byrja á skreytingum gengur samt hægt þvíég get ekki gert það hjálparlaust en nýt aðstoðar kallanna minna. Skal alveg játa að mig er farið að hlakka til að komast í þessa aðgerð sko! Svo fengum við glaðningu frá almættinu í gær þennan fína snjó,gerir gluggaþrifin sem eftir voru miklu skemmtilegri og allt jólalegra að ég tali ekki um stilluna það gerir mér kleyft að blása upp kanadíska garðskrautið á pallinum á morgun vona bara að skríllinn hennar Obbu komi að njóta það er ekkert gaman án barna svo mikið er víst!
Jæja nú ætla ég að vista og sjá hvað gerist
Later! -Frú Fríða!

BÚIÐ Í DAG....Helga Fríða Tómasdóttir

Stóð í SMS-inu sem Júlla sendi mér fyrir hádegi, mamma hvernig gengur með þvottinn minn heyrðist í junior getur verið að ég fari suður í dag sko! Svo hundskottinn verða að bíða aðeins eftir göngutúrnum greyin annars voru þau hetjur dagsins í myndatökunni á sunnudaginn og þó einkum Máni sem fékk mörg prik um helgina hjá frænku sinni henni Gullu Nóu. Skottan sumsjé komin og farin, yndislegt að fá hana á vonandi eftir að fá hana aftur fyrir jól.
Lífið þessa daga snýst um tilvonandi utanlandsferð, sæmileg spenna að byggjast upp held að þetta eigi eftir að vera svona skoða sig um, borða úti og afslappelsisferð get ekki einu sinni látið mér detta í hug eitthvað að kaupa svona er konan nú orðin þroskuð hehe!
Halli, Tommi og Agnes fóru í náms og skoðunarferð norður í síðustu viku keyptu dekk undir Rauð í leiðinni fóru í gangaferð og enduðu á Siglufirði fóru líka í jólahúsið hvað þá meira!
En ég fékk að vera heima, notaði tækifærið blastaði baggalút í spilararanum og tók til og þreif alveg fullt fullt fyrir allan peninginn
!
  Svo dó í síðustu viku Borga gamla í Vindási,var heimagangur þar í uþb 2 ár þegar ég var krakki lærði margt af henni og þeirri fjölskyldu. Blessuð sé minning hennar. 'A sunnudaginn var liðið ár síðan mamma dó. Fór með Gullu suður ogvið systur fórum með dýrin og skottuna í myndatöku svo var haldið í kirkjugarðinn að heimsækja ömmu Nóu. Sendum svo Einsa út að kaupa KFC í kvöldmatinn til að minnast hennar.Svona eins og mamma hefði gert  ekkert að hafa mikið fyrir henni. Svo héldum við heim og sýndist nú karlpeningurinn ósköp fegin að fá okkur til baka.
Later!

NÚ ER KOMIÐ HRÍMKALLT HAUST,HORFIN SUMARS BLÍÍÍÍÍÍÍ ÍÍÍÍÍIÐA!Helga Fríða Tómasdóttir

Setti inn færslu sem ég hafði byrjað einhverntíma á spurning hvort hún tollir inni. Annars er statusinn á okkur þannig:Halla stóra gengur vel með kvótann amk.í sept en þykir gott að ná einum tveimur dögum í viku í okt.Junior er í bænum en kemur vestur í nóv til að leysa vélstjórann af meðann sá fer í fæðingarorlof.Tómas var að klára vaktavinnuna á kvíabryggju og er í biðstöðu eiginlega til 1. nóv.hvort hann fái eitthvað meira. Sjálf er ég farin að vinna hálfan daginn, fór í sprautur fyrir mánuði vegna baksins sem virðast hafa heppnast vel en þarf samt lítið til að hnika brjóskinu. Mjöðmin er ekkert að skána svosem verður bara svona þar til nýja dótið kemur vona bara að það seinki ekki vegna samdráttar.
Annars er stefnt til Glasgow í nóvember með starfsmannafélaginu, verður gaman að sjá hvort þeir séu búnir að hreinsa borgina síðan fyrir tugtugu og fimm árum síðan hún var ansi skítug þá en maður var svosem ekki að pæla mikið í því þá fyrr en maður rakst utan í húsvegg og varð kolsvartur.
Gulla Nóa er að koma um næstu helgi í heimsókn og svo ætlum við saman í bæinn á sunnudaginn þá er liðið ár frá því mamma dó.
Annars allt í gúddý fílig og ég ætla að henda mér útaf aftur er víst búin að vaka síðan fjögur.
Later gott fólk!

ENGINN VEIT HVAÐ ÁTT HEFUR FYRR EN MISST HEFUR....Helga Fríða Tómasdóttir

Og er ég að tala um heilsuna einhvern veginn ímyndaði ég mér að heilsuleysi einskorðaðist við að liggja á spítala og missa af öllu.En hún getur svosm verið eins og mín heftandi geta gert ýmislegt en ekki allt sem mig langar til. En hér sit ég þetta blogg verður skrifað i´bútum því ég á að vera á ferðinni samkvæmt the doktors orders,og með þolinm´ði lagast þetta er meira að segja komin á biðlista fyrir nýjan mjaðmaliðvinsta megin!Annars allt gottTómas er enn á Bryggju Halli byrjaður á trillunni að veiða kvótann og verður i´fríi á Sóleynni fram í Nóvember.Búinn að veiða 2.3 tonn af tæp 15 í þorskígildum. Junior kom í heimsókn um daginn og svo var hann kallaður heim í fyrradag til að hjálpa pappa sínum með pottinn. Svo í kvöld eru það kjötbollur í brúnni með nýjum kartöflum og rabbararsultu

ALDREI SEGJA EITTHVAÐ SEM MAÐUR GETUR EKKI STAÐIÐ VIÐ....TÓMAS!Helga Fríða Tómasdóttir

Jæja ætlaði svoleiðis að lofa drengnum að lóga hundinum vantaði ekki kjaftinn á honum og yfirlýsingarnar en það náði ekkert lengra. Svo hann verður áfram en ljóst er að hann verður ekki tekin neinum vettlingatökum. Hann er bara þannig, illa upp alinn og hefur komist upp með ýmislegt sem þarf að stoppa af. Halla finnst hann líka vera sáttari síðan við tókum á þessu í vikunni en þetta er verkefni sem allir verða að taka þátt í á heimilinu.
Annars er búinn að vera heljarinnar gestagangur, Binna, 'Asgeir, Valdór,Bergrós, Sigga, Sölvi, Hekla, Birgitta og kærastinn hennar frá Selfossi að ógleymdum Bjarti Kónga Kalla. Svo komu Unnur Valborg, Alfreð, Guðni litli broskall, Skúli Húnn og William í kaffi í gær að ógleymdri hinni ferfættu Pamelu. Bara gaman, fór meira að segja með Binnu og co. í Vatnshelli í gær og hugtakið um bætt aðgengi fékk alveg nýja merkingu þetta framtak á bara hrós skilið! Stóð sjálfan mig samt að því að meta leiðina þannig hvort að mamma kæmist... ogt hún hefði sko alveg komist svo flott er þetta! Annars er Reykjavík á morgun og hinn mikill og langur snúningalisti, kallinn er enn á strandveiðum junior á sjó fengu makrílviðbótina sem dugir í 1-2 róðra og Tommi fékk áfram vist útá Bryggju í 'ágúst. Svo er hann að forrita sýninguna fyrir dönsku dagana um næstu helgi verður í svolitlu tímahraki vegna vinnunar en ekkert sem gott skipulag ræður ekki við.
'I dag verður letilíf, barnaafmæli og sólböð á pallinum þurrka smá af og þrífa svona samviskunnar vegna! Annars allt gott eigið góða  viku framundan!

JÆJA NÚ GEFST ÉG UPP....Helga Fríða Tómasdóttir

Fór í háttinn áðan og fann um leið og ég opnaði pissulykt... helv..hundurinn búinn að merkja eina ferðina enn en þar sem Halli var sofnaður ákvað ég að láta kyrrt liggja þangað til í fyrramálið, korteri seinna var ég komin framúr búin að kveikja og farin að leita upprunans á gólfinu en ekkert fannst... lagðist aftur uppí og hélt að lyktin kæmi kannski undan rúminu en þegar ég var búin að bylta mér smástund í viðbót kom skýringin í sænginni og þegar hundur mígur í sængina mína á hann ekki von á góðu.
 Annars allt gott Tómas kominn í land og væntanlegur heim á morgun, bóndinn byrjaður á strandveiðum bræla í dag og lítill afli en spáir betur á morgun. Junior kominn í land með fullan bát og farinn í bæinn.
 Reykjavíkurferð í kortunum þarf að ganga frá kaupum á einu stykki legstein og versla sitt lítið af hvurju! Svo væri nú alveg brilljant að komast í eitt tvö ferðalög amk. á húsbílnum! Grunar að sveppirnir séu að fara af stað, væri gaman að komast í góðan sveppaskóg þetta árið. En best að reyna að sofna það er ræs kl 0600...
Later!

ALL QUIET IN THE WESTERN FRONT....Helga Fríða Tómasdóttir

Heima um versló, helgast aðallega af kvefi og slappheitum nenni heldur ekki að ferðast í roki og rigningu svosem. Dunda frekar heima við að gera hluti sem ég er búin að draga allt of lengi svosem eins og að pressa berin í Fínni frúar elexírinn anno domini 2010! Rakaði Mána í fyrrakvöld á nýja borðinu sem Halli útbjó fyrir mig og það var sko allt annað að sjá kappann! Tómas er farinn til Eyja í gæslu fram á þriðjudag og Junior kom við í gær á leið út á sjó þeir eru búnir með makrílinn og eru farnir aftur á troll.Annars er bara kúr kannsii pússa eldhússkápana eða.... taka til í fataskápnum ...hummm kemur í ljós með nenninu!
Later gott fólk!

JÆJA ÉG LOFAÐI...Helga Fríða Tómasdóttir

Og maður á víst að standa við orðin sín er það ekki? Já sá að það vantaði eina færslu síðan í byrjun júlí svo ég fer bara á handahlaupum þar yfir. Vinna éta sofa! Grundi var sendur á löngu og keilu þannig að sumarfríið styttist um mánuð.Og ég sem ætlaði að gera fullt í júní en það hefði svo sem ekkert orðið af því vegna veðurs! Júlí er bara önnum kafinn máluðum pallinn og megnið af girðingunni fyrir Góðu stundina, búin að fara í eitt ferðalag og annað í kortunum. Halli búinn með kvótann og nær strandveiðunum í ágúst.Góða stundin var bara góð Tucker fékk regnbogakökuna sína og veislu og ég fékk fullt af gestum. Veðrið var fínt en einhver tuðaði yfir vindi...önsum ekki svoleiðis! Jæja framundan er dósatalning,þrif á húsbílnum,knúsa kallinn og fleiri skemmtilegheit!
Later!

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Helga Fríða Tómasdóttir
  • Staður: Grundarfjörður
  • Um mig: Húsmóðir með áhuga á björgunarsveitarmálum in general, hundum, og útgerð svo fátt eitt sé nefnt

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur